
Við Karlsstaði í Vöðlavík er lítið tjaldstæði. Tjaldgestir hafa aðgang að vatnssaleri og köldu vatni, en á svæðinu er hvorki rafmagn né heitt vatn. Eins er lítið og ótryggt símasamband í og við tjaldsvæðið.
Mikið er af skemmtilegum gönguleiðum á svæðið en einnig er gott að koma til að slappa af og fá hvíld frá amstri hversdagsins.
Jepplingafært er á svæðið. Keyra þarf yfir eitt lítið vað. Það tekur 30 - 40 mínútur að keyra í Vöðlavík frá Eskifirði.