Tjaldsvæðið Árnesi stendur við Kálfá nálægt mynni Þjórsárdals sem er eitt fegursta svæði landsins.
Þaðan er stutt að fara til að skoða fjölmargar náttúruperlur, sögufræga staði og fjölbreytt náttúrufar.
Á tjaldsvæðinu er rúmgóð flöt með 60 rafmagnstenglum.
Aðgengi er að salernum, sturtum og þvottavél.
Einnig eru þar hliðartjaldsvæði, m.a. flöt rétt við sundlaugina, sem rúma minni hópa. Góð aðstaða er fyrir útiveru, leiki og íþróttir.
Hægt er að fá leigðan sal til inniveru fyrir hópa. Á staðnum er veitinga og kaffistofa, sundlaug, fótboltavöllur, gistiheimili og verslun. Þar er einnig Þjórsárstofa ásamt veitingarstaðnum Brytinn, upplýsingamiðstöð og margmiðlunarsýning um náttúru Þjórsárdals og Þjórsá.