
Tjaldsvæðið Skjól er staðsett milli Gullfoss og Geysis. Tjaldsvæðið er stórt og þar er rafmagn og frítt wifi.
Á svæðinu er svo veitingastaður þar sem búið er upp á pizzur, hamborgara og kranabjór. Opin er til kl. 23 alla daga.
Einnig er þar kominn stór hoppdýna sem hefur slegið í gegn hjá börnunum. Í boði er að fara í mini golf og poolborð er á svæðinu.
Það eru nægir staðir að skoða í nágrenni tjaldsvæðisins og þeir á meðal eru Geysir, Gullfoss, Laugavatn, Kerlingarfjöll og margt fleira. Einnig má finna næga afþreyingu en á næsta bæ er hestaleiga og svo er einn glæsilegasti golfvöllur landsins aðeins 3 km frá tjaldsvæðinu.
Boltinn er sýndur á tjaldsvæðinu um helgar.