Heiðarbær er kjörin staður fyrir fjölskylduna í rólegu umhverfi þar sem er leiksvæði með ærslabelg, rólum og fótboltamörkum.
Í Heiðarbæ er veitingasala, bar, sundlaug og heitur pottur. Hægt er að fá pizzur, hamborgara, smárétti, ís og kaffi.
Heiðarbær er staðsettur á milli Húsavíkur og Mývatns á vegi 87. Stutt er í marga vinsælustu ferðamannastaði norðausturhluta landsins. Ásbyrgi 40 km, Jökulsárgljúfur 79 km, Mývatn 33 km, Goðafoss 29 km, Þeistareykir 49 km og Húsavík 20 km.