
Volcano Huts í Húsadal í Þórsmörk er þjónustufyrirtæki sem staðsett er í Húsadal í Þórsmörk og býður upp á gistingu og veitingar fyrir hópa og einstaklinga. Þórsmörk er ævintýraheimur göngufólks og náttúruunnenda á öllum aldri. Landslagið er ægifagurt og mótast af samspili eldfjalla, jökla, skóga og jökuláa sem móta útsýnið til allra átta.
í Húsadal er boðið upp á gistingu í notalegum fjallaskálum, fjögurra til fimm manna smáhýsum, eins og tveggja manna herbergjum, glæsitjöldum og á tjaldsvæðum. Hægt er að fá leigð rúmföt og sængur á staðnum. Sturtur, gufubað og heit náttúrulaug er innifalið í gistingu en aðrir ferðalangar geta fengið aðgang að þeirri þjónustu.
Til að komast í Húsadal er ekið frá Suðurlandsvegi upp jeppafæran vegarslóða merktan F249 í Þórsmörk. Fara þarf yfir nokkrar ár og læki á leiðinni en helst má þar nefna Krossá sem eingöngu er fær vönum bílstjórum á vel útbúnum jeppum. Staðarhaldari Í Húsadal getur veitt aðstoð við að komast yfir Krossá.
Daglegar rútuferðir eru frá BSÍ yfir sumar mánuðina en hægt er að nálgast nánari upplýsingar um áætlun rútuferða og að bóka rútumiða á vefsíðu Volcano Huts.
Bókanir og allar nánari upplýsingar um þjónustu Í Húsadal er að finna á vefsíðunni http://www.volcanohuts.com