
Tjaldsvæðið á Húnavöllum er staðsett rétt við þjóðveg 1 á Norðurlandi, í rólegu og fallegu umhverfi. Svæðið er fjölskylduvænt, kjörið fyrir ættarmót og aðra viðburði, og hentar bæði fyrir tjöld, hjólhýsi og húsbíla.
Við svæðið er gistiheimili og gestum stendur til boða sundlaug (17 m), heitur pottur, fallegar gönguleiðir og fjölbreytt afþreying fyrir alla aldurshópa, m.a. fótboltavöllur, sparkvöllur og leiksvæði. Blönduós er í stuttri akstursfjarlægð með verslanir og veitingastaði.
Húnavellir eru tilvalinn áningarstaður fyrir ferðalanga á hringveginum eða þá sem vilja njóta náttúrunnar á Norðurlandi.