Blika.is er í eigu Veðurvaktarinnar ehf, vedurvaktin@vedurvaktin.isUm Bliku
CJA tjaldsvæði
1 / 3

Upplýsingar

8643757
https://cja.is
cja@cja.is
65.7016905527, -17.3497045041
1.1. - 31.12.

Verð

Fullorðnir1.900 kr
13 - 17 ára600 kr
1 - 12 ára0 kr
Tjald200 kr
Fellihýsi200 kr
Hjólhýsi200 kr
Rafmagn800 kr
Gistináttagjald400 kr
Síðast uppfært: 2025

Þægindi

Kalt vatn
Heitt vatn
Rafmagn
Eldunaraðstaða
Sturta (frítt)
Símasamband
campsiteDetail.wifi
Hundar leyfðir
Þvottavél
Vatnssalerni

Um tjaldsvæðið

Á bænum Hjalla í Reykjadal reka eigendur og ábúendur lítið tjaldsvæði í rólegu umhverfi. Allt svæðið er hólfað niður í einkabása sem eru á bilinu 80 til 150 fermetrar, aðskildir hver frá öðrum með runna og trjágróðri. Það er ekki nauðsynlegt en hentugt og öruggt að panta fyrirfram af þessum sökum. Lögð er áhersla á vandaða umgerð og persónulega þjónustu. Tjaldsvæðið er vaktað og hirt og metnaður lagður í að hafa það, umhverfið allt og þjónustuhúsnæðið hreint, snyrtilegt og aðlaðandi.

Upplýsingar um forbókanir:

Við leggjum mikið upp úr því að koma í veg fyrir að svæði fari í for í blautu tíðarfari og því er eingöngu hægt að bóka viku fram í tímann á sumrin (á veturnar er lagt í stæði á möl og hægt að bóka lengra fram í tímann). Við leigjum til svefnpokagistingar kofa (hámark þrír einstaklingar) og tunnu (hámark tveir) og er líka hægt að bóka það hér á parka.is

Nánari lýsing á hólfum / aðstöðu:

Árið 2004 gerðu eigendur Hjalla og Norðurlandsskógar með sér samkomulag um gerð skjólbelta á tveimur gömlum túnum. Öll hólf á tjaldsvæðinu hafa því trjá- og runnagróður á 3 vegu en svæðin eru misstór, þau minnstu um 80 fermetrar en þau stærstu tæplega 200 fermetrar. Örlítill vatnshalli er á tjaldstæðinu.

Í þjónustuhúsnæðinu er lítil setustofa og 3 baðherbergi með samtals 4 sturtum, 5 klósettum og 1 pissuskál. Í óupphituðu rými er einföld eldunaraðstaða, vaskar og dallar til að flokka til endurvinnslu. Aðstaða er til seirulosunar (eingöngu klósett, ekki affall) og slanga til að fylla á neysluvatnstanka.