Blika.is er í eigu Veðurvaktarinnar ehf, vedurvaktin@vedurvaktin.isUm Bliku
Þakgil
1 / 2

Upplýsingar

8934889
http://thakgil.is
helga@thakgil.is
63.5306348173, -18.888797164
1.6. - 15.9.

Verð

Fullorðnir2.800 kr
12 - 17 ára2.800 kr
1 - 11 ára0 kr
Gistináttagjald400 kr
Síðast uppfært: 2025

Þægindi

Kalt vatn
Heitt vatn
Rafmagn
Engin eldunaraðstaða
Sturta (frítt)
Símasamband
Ekkert WiFi
Hundar leyfðir
Engin þvottavél
Vatnssalerni

Um tjaldsvæðið

Þakgil, 20 km frá Vík í Mýrdal, og svæðið í kring hefur uppá að bjóða stórbrotið landslag allt frá sléttlendi til djúpra gilja og sjálfan Mýrdalsjökul. Í fjöllunum sem eru græn upp í top má sjá allskonar kynjamyndir hobbita, álfa, tröll allt eftir hugmyndaflugi hvers og eins.

Svæðið er tilvalið til gönguferða hvort sem er á sléttlendi í Remundargili og út að Mýlakvísl eða sem er meira krefjandi t.d. uppá Mælifell og fram Barð eða upp að jöklinum og út á Rjúpnagilsbrún en þaðan er ægifagurt útsýni yfir Kötlujökulinn, Huldufjöll og undirlendi suðurlands. Þaðan sérst m.a. til Lómagnúps og Vatnajökuls. Síðan er hægt að ganga eftir jöklinum í Huldufjöll en það er krefjandi og krefst sérstaks útbúnaðar og leiðsagnar.

Það er skjólsælt á tjaldsvæðinu þar sem það er umkringt fjöllum. Það er auðvelt að komast þangað þar sem það eru engar ár eða sprænur yfir að fara og er fært öllun venjulegum bílum og tækifæri fyrir alla að komast í fjallakyrrðina inná hálendinu.

Á tjaldsvæðinu er nýtt WC og sturtuhús með útiuppvöskunaraðstöðu.