VEÐURSTÖÐVAR SEM SOKKNAR ERU Í SKÓG
Tók eftir því í gær að hiti mældist yfir 22 stig bæði á Végeirsstöðum í Fnjóskadal og eins á Hallormsstað.
Í nýjustu skýrslu veðurmælingateymis Veðurstofunnar frá 2023 er eru gerðar athugasemdir við það að fjórar veðurstöðvar séu sokknar skóg.
https://www.vedur.is/media/vedurstofan-utgafa-2023/Vedurathuganir-a-Islandi-2023.pdf
Þar með eru mælingar ekki gerðar við það sem kallast staðalaðstæður. Á það m.a. við um hita, raka og vind.
Þessar stöðvar eru:
Korpa
Végeirsstaðir
Húsavík og
Hallormsstaður
Sú fimmta er Skaftafell, en ég veit að þar er búið að færa stöðina frá tjrágróðri og á bersvæði. Mögulega er einnig búið að færa stöðina í Korpu, veit að það stóð til.
Seint í ágúst 2021 fékk ég Þór Þorfinnsson skógarvörð á Hallormsstað til að vísa mér á veðurstöðina, eftir að ég hafði leitað hennar um stund. Tók meðfylgjandi mynd, en nokkrum dögum áður mældi hitamælirinn mest 29,2 stig. Það var og skráð sem nýtt ágústhitamet á landsvísu. Sjá hér:
https://www.vedur.is/um-vi/frettir/tidarfar-arsins-2021
Athugið að vindmælir stöðvarinnar er efst í mastrinu, en ekki rellan sem þarna sést.
Ég benti á sínum tíma á að langt í frá teldust vera staðalastæður við hitamælingarnar á Hallormsstað. Veðurstofan lét sér þá þær aðfinnslur í léttu rúmi liggja og viðurkenndi hitametið undanbragðalaust. Síðan þá hefur gróður sótt enn frekar að stöðinni.
Höfum þetta í huga nú þegar við sjáum á skjánum hjá okkur háar tölur frá þessum stöðvum sem sokknar eru í skóg eins og veðurathugunarteymi VÍ kallar það.
Mögulega er Egilsstaðaflugvöllur, sem trónir oftast á toppnum þessa dagana, heldur ekki mælistaður hita við kjöraðstæður. Þar þrengja nálægar byggingar að mælingunum, svo notað sé orðalag teymisins. En mér skilst að Veðurstofan ætli að skoða aðstæður þar og meta áður en nýtt maí hitamet verður staðfest.