VEÐURÞÁTTASPÁR Á BLIKU

VEÐURÞÁTTASPÁR Á BLIKU
Á nýju ári verða aðgengileg spákort fyrir hita, vind og úrkomu á Bliku á síðunni undir kassanum: Veðurþáttaspár.
Auk WRF reikninga Bliku til næstu 60 klst., er hægt að skoða IGB/Harmonie spár Veðurstofunnar. Auðvelt er að skipta á milli og bera saman spárnar.
Þá er hægt að skoða uppsafnaða úrkomu yfir spátímann.
Spákortin uppfærast á 6 klst fresti.
Fleiri viðbætur og nýungar eru í farvatninu á Bliku.
Veðurvefurinn verður líkt og áður opinn öllum sem vilja nálgast veðurspár á aðgengilegan hátt.
Enska útgáfan er síðan á wet.is.