VEÐUFARSANNÁLL 2024
Ársuppgjör 2024 - pistill sem fluttur var í Samfélaginu á Rás 1 í dag
RÚV 30. des.
Árið 2024 verður í veðurfarslegu tilliti helst minnst fyrir það hve kalt það reyndist. Í það minnsta ef mið er tekið af síðustu tveimur áratugum eftir að tók að hlýna um og fyrir aldamótin.
Ísland sker sig því verulega úr hvað hita jarðar áhrærir,
en 2024 stefnir á heimsvísu í að verða enn eina ferðina hlýjasta ár frá upphafi
mælinga.
Í Reykjavík verður árið það kaldasta frá 1995 og á
landsvísu trúlega frá því 1998.
Hitafarið líkist frekar því sem var hér á árabili sem kallast
kalda tímabilið og varði frá um 1965 – 1995.
En líklega er þetta fráviksár eitt af mörgum sem verða
hér alltaf annað slagið og skera sig úr, enda veðráttan hér þekkt fyrir afar
mikinn breytileika eins og við þekkjum.
Sérstaklega þótti síðari hluti sumars vera kaldur sem og
haustmánuðirnir.
Í raun athyglisvert og fréttnæmt að í Reykjavík mældist hitinn
undir meðallagi átta mánuði í röð, frá maí – des. Þá er miðað við meðaltalið
1991-2020.
Garðar í Staðarsveit um verslunarmannahelgina - norðan blástur alla dagana.
Úrkoma var hins vegar í meðallagi í Reykjavík, en um 20%
meiri en í meðalári á Akureyri. Dálítið
misskipt og eigum eftir að fá samanburð fyrir Suðurland, þar var þurrara og
eins Vesturland þar sem ég held að endurteknar stórrigningar í sumar vegi
þungt. Mikið vatnsveður var á
Snæfellsnesi 13.-14 júlí og
sólarhringsúrkoma 227 mm í Grundarfirði og jafnframt met á þeim stað. Svo mikil rigning að sumarlagi heyrir til tíðinda.
Í raun má segja að júlímánuður hafi verið sannkallaður rigningarmánuður
sunnan- og vestanlands og þannig voru sólskinsstundir í Reykjavík markvert
færri en að jafnaði.
Herðubreiðalindir 6. ágúst. Sólin skein, en ansi var hann svalur!
En gerum upp árið að öðru leyti.
Janúar þótti fremur kaldur og umhleypingasamur þegar frá leið.
Eins var kalt í febrúar, en talsvert um froststillur. Litlar breytingar í mars,
en þá var NA-átt ríkjandi og snjóaði norðan- og austanlands. Dálítið um það að
snjóflóð féllu á vegi, en annars var veturinn að mestu laus við mikið óveður
eða alvöru vetrarlægðir.
Apríl var stilltur, en fremur kaldur og áfram ríkjandi
NA- og N-áttir. Sólin skein linnulítið suðvestanlands og með sólríkari
aprílmánuðum í Reykjavík.
Það voraði vel svona heilt yfir eða þar til sló verulega
í bakseglin með nokkuð langvinnu norðanhreti sem gekk yfir landið í byrjun
mánaðarins. Snjóaði óvenju mikið norðanlands,
mældust þannig 43 sm í Vaglaskógi. Af
hlaust fugladauði og tjón hjá bændum.
Eins voru umtalsverðar samgöngutruflanir miðað við árstíma. Sjálfur mat ég það svo að ekki hefði gert jafn
slæmt hret á þessum árstíma í trúlega 90 ár. Eldri bændur norður í Þingeyjasýslu
með gott veðurminni voru sama sinnis.
Sumarið þótti frekar slappt og endasleppt. Það gerði góðan kafla austanlands seint í júní
og sunnan- og vestanlands náðust ágæt hey áður en lagðist í vætutíð. Aftur kom ágætur kafli í nokkra daga um
miðbik júlí og þá komst hitinn í 27,5 stig á Egilsstaðaflugvelli sem jafnframt
var hæsti hiti ársins.
Vöðlavík 9.ágúst - stutt var í þokuna.
Fyrir mánaðarmótin lagðist í N-áttir og hófst þá afbrigðilegur
veðurkafli sem stóð fram í september. Kalt og úrkomusamt um land allt og með
lægsta meðalhita á þessari öld. Hún var
einkennileg staða veðurkerfanna sem sást best á því að í ágúst mældist lægsti
meðalloftþrýstingur a.m.k. suðvestanlands frá upphafi mælinga 1820.
Kalda tíðin hélt áfram og september var sá kaldasti á
landinu í 19 ár. Áfram hélst kalt fram á haustið, en tíðin fremur hæglát.
Veðrið skipti síðan algerlega um ham snemma í nóvember,
þegar gerði tveggja vikna nokkuð óvenjuleg hlýindi með nokkuð hvössum sunnanáttum.
Voru slegin nóvemberhitamet á fjölda veðurstöðva. Hvergi hlýrra en á Kvískerjum
með 23,8°C. Hæsti hiti sumarsins í Reykjavík
var til samanburðar 17,4 stig!
Leysingar og vatnavextir fylgdu með grjóthruni og
skriðuföllum. Um miðjan mánuðinn snerist síðan aftur í kaldar N-áttir og
umskiptin voru mjög glögg. Endaði mánuðinn á því að vera undir hitameðaltalinu
um nánast allt land.
Desember er ekki liðinn, hann verður einn einn kuldamánuður
ársins. Markverðar voru leysingar með talsverðum vatnavöxtum í kring um þann
10. Ekki síður útsynningurinn um jólin
með ófærð á milli landshluta, einkum á þorláksmessu og jóladag.
Neskaupstaður 30. ágúst - fallegur reynir í ungskógi ofan við keilurnar.