Það er lægðin sem verið hefur sýnilega í langtímaspákeyrslum dögum saman og hér við land í lok vikunnar.
Í nýjustu spákortum eru tvær markverðar breytingar frá því fyrir tveimur dögum.
1.
Lægðinni er nú spáð fyrr og þá að hún verði á ná mestu dýpt seinnipartinn á fimmtudag í stað föstudagsmorgunn. Við sjáum gjarnan tímarek eins og þetta, þ.e. veðrið kemur fyrr en fyrstu spár reiknuðu með.
2. Í spá ECMWF er hún ekki eins djúp eða 956 hPa kl. 12 á fimmtudag. Á þó trúlega eitthvað eftir í mestu dýpt. Spá AIFS (hermigreindarspá) á kortunum til hægri, þar lægðin dýpri, en miðjunni spáð vestar, alveg undir A-strönd Grænlands. Þar er hún líka um 6 klst fyrr á ferðinni.
Það væri jákvætt fyrir okkur. Raunin er sú að meirihluti djúpra lægða með svipaðan aðdraganda endar þar á hringsóli. Breytir því ekki að feykihvasst verður á undan skilunum með SA- eða A-átt.
Til gamans birti ég líka spá af vef MeteoBlue / Windy. Hún gildir líka kl. 12 á fimmtudag. Veit ekki við hvaða líkan þeir styðjast í þessari útgáfu - mögulega eitt hermigreindarlíkananna. Lægðin er þar á nokkuð kunnuglegum slóðum við SA-Grænland og 940 hPa í miðju.