SPÁGÆÐI SÍÐUSTU 14 DAGA

Eftir óveðurskaflann að undanförnu er ekki úr vegi að skoða gæði veðurspáa hjá Bliku samanborið við Veðurstofuna og yr.no (norsku spána).

Hægt er að fylgjast daglega með spágæðum á forsíðu Bliku síðustu tvær vikurnar.

Hér er skoðuð meðalspágeta 11 helstu stöðva vítt og breitt um landið.

Vindaspárnar voru nákvæmastar á Bliku þessa daga, 20. feb - 5. mars. Munar talsverðu í eins og þriggja daga spám.

Hitaspá Veðursofunnar vinninginn í þriggja og fimm daga spám, en litlu munar á spá VÍ og Bliku.


Hjá Bliku er beitt hermigreind ofan á sjálfa grunnspánna. En aðeins á þeim stöðum þar sem eru veðurmælingar. Þeir eru rúmlega 200 talsins.

Stöðugt er unnið að endurbótum og þróun á spálíkani Bliku til að gera veðurspárnar hvað nákvæmastar. Nýjasta nýtt í þróun spákerfanna verður kynnt á næstunni.