SPÁÐ ER 20 STIGA HITA

SPÁÐ ER 20 STIGA HITA

Greint er frá því að Veðurstofan hafi spáð allt að 20 stiga hita norðan- og austanlands næstu daga.

10 daga spá ECMWF (5. til 14. apríl) sýnir líkar mjög hlýtt loft yfir landinu, og að hiti í 850 hPa fletinum eða í um 1.300 - 1.400 m hæð verði að jafnaði allt að 8 stigum yfir meðallagi árstímans.

Að líkindum rís kvikasilfrið í hitamælunum hvað hæst eftir helgi, á þriðjudag eða miðvikudag.

Veðurspákortið sem gildir á miðvikudag kl. 18 sýnir háþrýstisvæði yfir Bretlandseyjum. Til okkar berst sérlega milt, en líka fremur rakt loft með SV-átt.

Þriðja kortið úr sama ranni gefur til kynna frávik hitans í 850 hPa, einnig á miðvikudag. Hlýindinum er spáð á stóru svæði og við þessi skilyrði meiri austanlands. Þar gæti líka sólin hjálpað til.


Annars er næsta fátítt að hiti mælist 20 stig eða meiri framan af í apríl. Eðlilega mun algengara undir lok mánaðarins.

Mér sýnist í fljótu bragði aðeins vera til tvö skráð slík tilvik fyrir miðjan apríl:

3. apríl 2007: 21,2°C í Neskaupstað.

9. apríl 2011: 20,2°C á Skjaldþingstöðum.

Hitinn 2007 í byrjun mánaðarins var mjög óvenjulegur í alla staði.
En eins og öft þegar hitaöfgar sýna sig að vorlagi er ekki ósjaldan stutt í kalt loft í norðri. Þannig var það þessa daga í byrjun 2007 í dimbilbikunn og næstu daga fyrir páska kólnaði nokkuð hastarlega.

20 stigin 2011 gerði í veðurstöðu ekki ósvpaðri og nú er spáð. Reyndar var lægri loftþrýstingur, en hæðin samt í svipaða veru yfir Bretlandeyjum. Hlýindin 9. apríl 2011 voru einnig endaslepp.

Strax daginn eftir gerði eitt eftirminnilegasta óveður síðarari ára í apríl, eins og meðfylgjanai úrklippa úr mogganum 11. apríl ber með sér. Eiginlega í fyrsta sinn sem nokkuð margar vélar máttu dúsa vaggandi í snörpum vindinum í nokkrar klukkustundir úti á Keflavíkurflugvelli.

Hvað tekur nú við eftir að hlýindum líkur upp úr næstu viku er ekki gott að segja. En breytingar í einhverja veru verða að teljast líklegar.