SLÉTT OG FELLT – ÞÓ GÁRAR UNDIR NIÐRI
Letileg hæð er
yfir Grænlandi. Hún ásamt lægðum nánast á „heimsenda“ lætur okkur veðurfræðingana fylgja þekktri spá-uppskriftinni
og við hálf-dormum yfir veðurkortunum.
En það má reyndar
ekki, því undir sléttu og felldu yfirborðinu
kunna að leynast veilur og jafnvel djúpir pyttir!
Hálftakort í dag sýnir
nokkuð fagra Grænlandshæð. Nærri Tromsö
í N-Noregi er hins vegar lægðardrag sem leynir á sér. Það stefnir nefnilega rakleiðis til okkar úr
norðaustri eins og kortaröðin sýnir. Um leið grefur það heldur um sig. Á yfirborðskortunum er hins vegar ekki mikið
að gerast í þrýstingi og vindum.
En háloftadragið
veldur uppstreymi og skýjamyndunum. Dragið fer skv. spáunum vestur yfir landið á
sunnudag. Þá mun snjóa á Norðurlandi og
norðantil á Vestfjörðum með NA-átt.
Ekkert er þar sem kemur að óvörum! Tökum eftir því á sunnanverðu landinu að á
meðan spá er V-átt í 5 km hæð, blæs af A nær jörðu. Svo
mikil vindáttabreyting með hæð veldur uppstreymi og óstöðugu ástandi.
Veðurlíkanið
leysir málið með snjókomubakka við suðvestanvert landið og öðrum við suðausturströndinni.
Mikil óvissa hvernig þetta kemur út. Til
viðbótar kemur við sögu mikill hitastigull frá köldu landinu suður yfir 6 til 8
stiga heitan sjóinn.
Spá ECMWF á seinni
myndin gerir ráð fyrir því á mánudag kl. 12 að drag verði að sjálfstæðri lægð
við Reykjanes og Snæfellsnes. Stutt þá í snjókomu vestanlands.
Athyglisvert er að bera saman gervigreindarspá (Gg) Google á mánudag, en hana má finna má á spávef Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar ásamt þremur öðrum slíkum tólum. Gg-spáin er ekki ósvipuð þeirri reiknuðu skref fyrir skref. Fróðlegt að sjá hvor verður nærri raunveruleikanum þegar upp er staðið.