ÓVENJULEGT VEÐURKORT

ÓVENJULEGT VEÐURKORT

Spákort úr líkani Veðurstofunnar á morgun, 18. ágúst sker í augu. Spáð er slyddu og snjókomu vestantil á norðurlandi og á Hornströndum (fjólublái liturinn).

Veðurstofan talaði í gær um að það gæti snjóað í fjöll aðfararnótt sunnudags. En gildistími þessa korts er kl. 15, eða um miðjan dag!

Gæti alveg átt við, allvega hvað slyddu áhrærir. Á Hveravöllum spáir Veðurstofan +2°C kl. 15. Blika er reyndar með +5°C í sinni spá.

Seinna kortið er spá ECMWF kl. 12 á morgun. Þar má sjá kalda tungu í um 1.200 m hæð (850 hPa). Lægsti hitinn í þeirri hæð -5,1°C yfir Eyjafirði.




Klárlega mun snjóa í fjöll norðanlands, a.m.k.í nótt og fram eftir degi. Líklega 10-20 sm ofan 800- 1.000 m. T.d. í Fljótum og við utanverðan Eyjafjörð sem og í Fjörðum og Flateyjardal.

Snjókoma í fjöll um þetta leyti er óvenjuleg og við erum að tala um heldur meiri snjó en að það það rétt gráni. Það er þar sem mest verður.
Finnum varla tilvik á þessari öld þar sem markvert hefur náð að snjóa í fjöll í kring um 20. ágúst.

1997 voru sumarhlýindi, en kólnaði nokkuð skart eftir 22. ágúst. Þá segir í Veðráttunni að alhvítt hefði verið sjö morgna í Snæfellsskála (820 m). Veðurskeyti bárust þaðan nokkur sumur man ég.