MEIRA AF SJÁVARHÆÐINNI

MEIRA AF SJÁVARHÆÐINNI

Í Gömlu höfninni í Reykjavík hefur sjávarhæð verið mæld með sírita frá því 1957. Höfum góðar mælingar þarna.

Sjávarborðið fer hækkandi þessi árin sem nemur rúmlega 2 mm á ári að jafnaði. Vísindanefnd um loftslagsbreytingar hefur í skýrslum sínum fjallað um breytingar á sjávarborði í löngu máli. Þar spila m.a. landhæðarbreytingar inn sem eru ekki að fullu skýrðar enn. Það á m.a. við suðvestanlands, þar sem land virðist þessi árin ýmist vera að síga eða rísa.

Hægt er að skoða mælingarnar í rauntíma hér hjá MogT sem annast þær fyrir Faxaflóahafnir.
https://vedur.mogt.is/harbor/index.php?action=Stations&harborid=1&stationid=1004

Sigurður Sigurðarson strandverkfræðingur hjá Vegagerðinn og áður Siglingastofnun skoðaði í rannsókn sinni fyrir nokkrum árum sjávarborð á lágsvæðum og viðmiðunarreglur fyrir landhæð. Fróðleg lesning sem ég mæli með fyrir áhugasama um þessi mál.

https://wp-beta.vegagerdin.is/wp-content/uploads/2023/07/lagsvaedi-vidmidunarreglur-utgafa-a-04-2018-1.pdf

Þar er meðal annars tafla um endurkomutíma flóðhæðar í Reykjavíkurhöfn. Útreikningarnir byggja á mælingum til 2016.

Sjáum að sjávarhæðin nú var ekki sérlega mikil í samanburðinum og á talsvert í land meða að teljast vera reiknað 10 ára flóð.




Ýmislegt fleira áhugavert er í þessum sjávarflóðamálum og mikilvægt er að við vitum að vánni, kunnum að breðgast við, sem og að aðlaga okkur hægt hækkandi sjávarborði.