LIÐNIR 12 MÁNUÐIR SKERA SIG ÚR

LIÐNIR 12 MÁNUÐIR SKERA SIG ÚR

Tilfinning margra ef ekki flestra, er sú að veðurlagið undanfarið ár og jafnvel tveggja ára, hafi verið talsvert fábrugðið því sem við eigum að venjast síðusta aldarfjórðunginn eða svo. 

Nú að loknum köldum októbermánuði er fróðlegt að taka saman meðalhita síðsutu 12 mánaða - svokallað hlaupandi meðaltal. Það er annað en ársmeðalhiti (jan-des).

Reykjavík. Meðalhiti síðustu 12 mánaða er 4,4°C.  

Til samanburðar var árshitinn 5,1°C, 2022 og 6,0°C árið 2016. 

Fara þarf aftur til 1997 til að finna lægra 12 mánaða meðaltal en nú.

Akureyri. Meðalhiti síðustu 12 mánaða er 3,0°C.

Til samanburða var ársihitinn 4,6°C 2021 og 5,5°C 2014.

Fara þarf aftur til 1995 til að finna lægra 12 mánaða meðaltal.  

Kortin sem fylgja með sýna frávik frá meðaltali síðustu 12 mánaða (vantar tvo daga í endann), Vel má sjá að hitafrávik í 2 m hæð ná yfir Ísland og nágrenni. Hitt kortið er ætað að sýna það að vestanstæður háloftastrengurinn, sem við getum til einföldunar kallað skotvindinn, hefur að jafnaði haldið sig sunnar en að vant er.  Það hefur svo aftur í för með sér að meðal-lægðbrautin hefur haldið sig  sunnar á Atlantshafi en venjulega.

Áhrifin eru líka önnur. Augljós er t.a.m. þau að hlýrra loft úr suðri berst síður til landsis.  Úrkomumynstrið verður líka með öðru sniði. Slæman vatnabúskap á Suðurlandi má rekja til þessa.  Meira hefur verið um N-áttir.  Aukin tíðni einkum N- og NV-vinda fyrir norðan land hvetur líkur til aukinnar útbreiðslu svalsjávar úti fyrir Norður- og Austurlandi, sem aftur veldur, enn lægri hita en annars væri.