Í DAG ER LOFTIÐ KOMIÐ FRÁ MARRAKÓ
Hitinn í dag hefur þegar þetta er skrifað kl. 10 orðið hæstur 16,7°C á báðum mælistöðum Vegagerðarinnar á Siglufjaðarvegi. Gæti hæglega orðið enn hærri síðar í dag, í hnúkaþeynum norðaustanlans.
Með einföldum HYSPLT-bakreikningi lofts kl. 9 í 1.500 metra hæð yfir utanverðum Tröllaskaga sést að upruni þess má rekja allt suður til N-Afríku, nánar tiltekið til Marrakó. Þar var þa' á laugardag, um 15°C í þessari sömu hæð og trúlega um 25°C við yfirborð í skini sólar. Á leið sinni hingað norður eftir, hefur það samt ekki kólnað nema um 5 stig (úr 15 í 10°C í 1.500 m hæð).
Það gerist alltaf annað slagið að hiti í nóvember komist í 20 stig einhvers staðar á landinu, kannski þriðja hvert ár að jafnaði.
Hitametið í nóvember er reyndar alveg ótrúlegt. Það er frá 1999 á Dalatanga, en þá mældist hámarkshitinn þ. 11, 23,2°C.
Þó hlýtt sé í dag sýnir spáruna ECMWF enn hlýrri veður með S-átt komandi þriðjudag, 12. nóvember. Samanburður sést á kortunum tveimur þar sem þykktin eða hitagæðin er sýnd með heilum línum og hitinn í 850 hPa (1.300 m) er litaður. Reyndar svipar spáin þennan dag mjög svo veðurstöðunni sem var upp þarna um 11. nóv 1999.
En vikuspáin getur farið í ýmsar áttir eins og við þekkjum mætavel.