
Hitamet nóvembermánaðar er 23,2°C frá 11. nóv 1999 á Dalatanga.
Kl. 20 í kvöld 11. nóv. hafði mælst 21,2 stiga hiti í Bakkagerði á Borgarfirði eystri og 21,0 á Seyðisfirði skv. yfirliti á veður.is.
Sjáum að á Seyðisfirði rauk hann úr 7 stigum upp í 20,3 á aðeins tveimur klukkustundum.
Og það ekkert í svo hvössum vindi. En engu að síður er ljóst að niðurstreymi hefur þvingað hlýtt loftið að ofan alveg niður að sjávarmáli. Við það hefur það náð að hlyna nánast þurr-innrænt eins og það er kallað um 0,9 - 1,0°C á hverja 100 metra.
Hárauð kortin sýna svokallaðan mættishita í 850 hPa þrýstifletinum, sem í dag er í um 1.400 m hæð. Mætishitinn segir í raun, miðað við hlýindin í þeirri hæð, hvað loftið gæti orðið heitt ef það er flutt þaðan og niður til sjávarmáls, þurrinrænt og eiginlega við bestu aðstæður.
Norðaustanlands var þessi tala 25,9°C kl. 18 skv. spákorti ECMWF, en í fyrramálið má sjá 28,4°C.
Áfram verða því hagfelldar aðstæður við fjöll sem dempt geta loftinu niður hlémegin eins og raunin var á Borgarfirði og Seyðisfirði.
Gæti hæglega hlýnað enn í niðamyrkrinu og sjálfur met ég um helmginslíkur á því að við fáum mælingu til fyrramáls yfir þessum 23,2°C.
Í raun er loftið nú yfir landinu álíka hlýtt og það verður við bestu skilyrði að sumarlagi!
