HELGIN 30. JÚNÍ TIL 2. JÚLÍ

HELGIN 30. JÚNÍ TIL 2. JÚLÍ

Lægðin sem hringsólað hefur yfir landinu frá því snemma á miðvikudag verður úr sögunni á morgun föstudag.   Ný lægð stefnir á Skotland og veldur því að hér við land verður NA-átt yfir helgina.  Hægur vindur til að byrja með, en hvessir nokkuð á sunnudag, einkum þegar frá líður.  Svo merkilegt sem það kann að hljóma að þá berst til  okkar hlýtt loft norðaustan úr höfum.  Hlýnindin skila sér sunnan heiða á sunnudag og á mánudag spáir Blika 18 stiga hita í Reykjavík og björtu sólskini.  

Föstudagur 30. júní:

Hægur vindur og að mestu skýjað. Helst að sjáist til sólar vestan- og suðvestanlands.  Skúrleiðingar austantil á Norðurlandi og austanlands.  Ekki kalt, en heldur ekki sérlega hlýtt, víða 9 til 13 stig að deginum.

Laugardagur 1. júlí.  

Komin verður NA-átt  um land allt, strekkingur norðantil á Vestfjörðum þegar líður á daginn. Skýjað og smá væta norðaustan- og austanlands, jafnvel þoka við sjóinn. Eins á Ströndum og norðantil á Vestfjörðum.  Sólarglennur líklegar sunnan – og vestanlands, en hætt við  síðdegisskúrum, einkum til fjalla.  Hiti allt að 13-16 stig sunnanlands, en 8 til 12 stig norðan- og austantil.

Sunnudagur 2. júlí:

Nokkuð ákveðin NA-átt þegar kemur fram á daginn, einkum um noðrvestanvert landið.  Líklega 10-18 m/s síðdegis og um kvöldið.  Lítils háttar rigning eða suddu með köflum um austanvert landið, en sæmilega bjart sunnan- og vestanlands.  Hiti þar allt að 15 til 17 stig.