ENN ÓTRÚLEG VETRARBLÍÐA – GLITTIR ÞÓ Í BREYTINGAR

ENN ÓTRÚLEG VETRARBLÍÐA – GLITTIR ÞÓ Í BREYTINGAR

Ekki er hægt að segja annað en að veðrið leiki við okkur nú í byrjun aðventunnar. Staða veðurkerfanna er með líkum hætti, eins og svo oft áður þetta haustið.  

Hún einkennist af suðlægari legu á skotvindi háloftanna.  Meginlægðabrautin liggur því langt suður í höfum. Þessa dagana eru lægðirnar bísna öflugar og beina raka og mildu lofti inn yfir sunnanverða Evrópu. Eftir situr norður- og norðausturhluti álfunnar með kalt loft sem laumar sér í rólegheitum austan úr köldum víðáttum Rússlands.  Útgeislunin og hægur vindurinn herðir síðan á kuldanum við yfirborð. Ekki ósvipað og hér inn til landsins, einkum fyrir norðan og austan.

Undanfarið hafa lægðirnar í suðri komist norðar á Atlantshafið án þess að hafa bein áhrif, en þó þannig að austanáttar verður vart með suðurströndinni. Hún stundum nægjailega strerk til að halda köldu loftinu frá. Því er frostlaust sums staðar sunnan- og suðvestanlands í dag og á morgun.  Á endanum gefur þessi austanstæða röst eftir og við tekur hægviðri og frost yfir helgina, einnig suðvestan- og sunnanlands yfir helgina.

Og áfram næstu daga þessi mjög svo þurra tíð.

En það glittir í breytingar og eins og oftast eiga þær rót sína í fjarska.  Hálftakortið í 300 hPa gildir á mánudag.  Þá spáir Evrópska reiknimiðstöðin að álitleg hæðarbylgja nái að vaxa frá N-Ameríku og í átt til Grænlands.  Hún kemur til með að raska öllu veðri við N-Atlanthaf a.m.k. í einhverja daga. Skotvindurinn nær að brjótast til norðurs og yfir sunnanvert Grænland um leið og sjálf hæðin stefnir á Bretlandseyjar.

Í stað áttleysu hæðar hér við land, stundum með veikum austan-þætti vindsins í um 3 – 8 km hæð, að þá snýst til SV-áttar í háloftunum á  þriðjudag.

GFS-spáin bandaríska er á sömu lund og þar má líka sjá  óhjákvæmilegar breytingar. Á síðaustu myndinni eru tvö spákort sem sýna lægðir úr suðvestri nærri landinu. Þá fyrri snemma á miðvikudag og síðari snemma á föstudag.


Sjáum hvað setur, en ýmilegt bendir til þess að þessar breytingar verði skammvinnar, og ólíklega einhver alger viðsnúningur í lofthringrásinni á norðurhveli.  En okkur munar klárlega um þessa úrkomu!