EIGINLEGT HAUST
Spár gefa skýrt
til kynna eiginlegt haust í næstu viku.
Vissulega hefur
verið heldur haustlegt undanfarnar vikur, en allra síðustu dagar verið frekar í
ætt við sumartíð með S-áttum og allt að 14 til 18 stiga hita fyrir norðan og
austan.
En sem sé, allar
líkur eru á því að hæðarhryggur í háloftunum komi sér fyrir vestan Grænlands um
helgina og með tilheyrandi Grænlandshæð. Þetta straummynsur háloftavindanna veldur N-átt hér
á landi sem er af þurrari sortinni. Það
kólnar um land allt, en víða verður sólríkt og fallegt veður ef þetta gengur
eftir, en næturkuldi fylgir.
Sjáum á spákorti
ECMWF fyrir vikuna 23. til 30. sept. Greinilegt merki er um háan loftþrýsting
hér og yfir Grænlandi. Hitanum er spáð 1 til 3 stigum undir meðallagi.
NAO-vísirinum verður
í neikvæðum ham (spá GEFS) til 1. október
og sjá má á innfelldu myndinni. Fylgifiskur
þessa veðurlags.
Sömu spákort
fyrir vikuna 30. sept til 7. okt gera síðan ráð fyrir því að hæðarsvæðið í
vestri gefi eftir, en áberandi lægðagangur veði úr suðvestri og yfir Skandinavíu.
Áfram því norðan- eða norðaustastæður vindur.
Trúlega þá meira um él og dagar með slyddu eða snjókomu norðaustantil. Og
áfram er spáð köldum frávikum í hitanum.
Síðasta myndin sýnir síðan úrkomufrávikin þessar tvær sömu vikum í spá ECMWF – Kort sem fæstir myndu tengja við haustrigningar!