BREYTILEGT (EINS OG OFTAST)

Ný þriggja vikna
spá frá Evrópsku reiknimiðstöðinni er nokkuð skýr þar sem reiknað er með skýrt
afmörkuðum köflum.
10. -13. maí: Ríkjandi N-átt og kalt á landinu. Víða
næturfrost og snjóar í fjöll og jafnvel í byggð norðantil.
Á kjördag snýst
til S-áttar með rigningu sunnanlands.
15. -19. maí: Spáð er hæðarsvæði við Bretland og
Skandinavíu. Kemur það til með að beina til okkar mildu lofti. Hvað hlýjast verður á þriðjudag og
miðvikudag, einkum norðanlands og á Vestfjörðum. Vætusamt verður suðaustanlands.
20. -21. maí: (helgi)
– Umbreyting um leið og hæðin gefur eftir. Dregur úr hlýindum og svalara loft
úr norðri læðist að okkur.
22. -29. maí:
50-70% líkur á því að það kólni aftur með háloftalægðardragi frá Grænlandi.
Breytilegir vindar og veður. Skúrasælt víða á landinu, en sól á milli.
Ef það er
eitthvað sem einkennir maí-veðráttuna að þá er það kaflaskipt veður, þar sem veður
heldur ákveðnum einkennum í 4-10 daga og síðan skiptir um vindátt og veðurlag. Maí 2021 var e.t.v. undantekningin með svölu (köldu), þurru og sólríku veðri nánasta
allan mánuðinn.
Kortin eru meðalspár fyrir einstakar vikur af vefsvæði ECMWF. Í 4. Viku er mikil dreifing í safnspám og lítil spágeta.