BRÁÐUM KEMUR BETRI TÍÐ...
..með blóm í haga
,
sæta langa
sumrdaga, kvað Halldór Laxnes í
klaustrinu árið 1922.
Fyrir norðan er
enn svalt, en alls ekki kalt og svo verður enn á morgun. Sólarlítið, en snjóinn
tekur nú rólega upp!
Á þriðjudag
mjakast hæðarhryggur í háloftunum inn yfir landið úr vestri. Snýst í suðlægan vind þarna uppi á miðvikudag
og því fylgir aðstreymi af mildu lofti.
Snjórinn hverfur þá
fljótt og bleytan frá honum niður í jarðveginn, gerir það að verkum að fljótt
sprettur um leið og hlýnar og sólin lætur sjá sig. Umbreytingin gæti orðið undur skjót. Blika spáir t.d. +16°C í Varmahlíð á
miðvikudag og spárit Veðurstofunnar fyrir Akureyri og Egilsstaði sýna glöggt
hve hitinn rís eftir morgundaginn.
En það er fleira á
þessu spákorti sem vert er að gefa gaum. NV-stæður vindur og raunveruleg leiðindi
sunnan lægðarinnar, þ.e. á
Bretlandseyjum og síðar einnig m.a. í Danmörku og í Niðurlöndum. Ekki síður í S-Skandinavíu.
Fylgjast þarf með
köldu lægðunum á norðurhjaranum og hvort þær taki á rás í átt til okkar. Sú
fyrir vestan Grænlands gæti „verpt eggi“ eða totu af svölu lofti. Henni er spáð
yfir S-Grænland og fram hjá okkur. Önnur
hæð við St. Lawrence Flóa og lítið fer
fyrir, gæti myndað vænlegan hrygg og
gert sig gildandi um komandi helgi (og 17. Júní) á okkar slóðum. Hugsanlega sem
Grænlandshæð með ekki svo kaldri N-átt eða að hæðin nái austar og þá með blíðuveðri
um mikinn hluta landsins.